Leiðandi á íslenskum heilbrigðismarkaði
Dótturfélög Veritas eiga það öll sameiginlegt að starfa á heilbrigðismarkaði. Hvert félag er sérhæft og leiðandi á sínu sviði: í innflutningi, skráningu, markaðssetningu og dreifingu á lyfjum, hjúkrunarvörum, rannsóknartækjum og heilsuvörum.
Félögin veita einnig ráðgjöf og þjónustu á sviði lækningatækja, hjúkrunar- og rannsóknarvara, auk stoðtækja, hjálpartækja og annarra sérlausna sem stuðla að bættri heilsu og lífsgæðum fólks og dýra.
-
Leiðandi í markaðssetningu á lyfjum og heilsuvörum
Áratuga samstarf við apótek og smásölur
Öflugt samstarf við alþjóðleg lyfjafyrirtæki
Artasan er leiðandi fyrirtæki í skráningu, sölu og markaðssetningu á heilsuvörum, lausasölulyfjum og samheitalyfjum.
Fyrirtækið vinnur náið með apótekum, smásöluaðilum og heilbrigðisstarfsfólki til að tryggja neytendum aðgengi að vörum sem stuðla að bættri heilsu og vellíðan.
Framkvæmdastjóri Artasan er Brynjúlfur Guðmundsson
-
Um 70% hlutdeild í lyfjadreifingu á Íslandi
Eitt fullkomnasta vöruhús landsins
Áratuga reynsla og sérhæfing
Distica þjónar íslenskum heilbrigðismarkaði með innflutningi, vörustjórnun og dreifingu á lyfjum og öðrum heilbrigðisvörum.
Áreiðanleiki og þjónusta í hverju skrefi tryggja að nauðsynlegar vörur berist örugglega til þeirra sem þurfa á þeim að halda.
Framkvæmdastjóri Distica er Júlía Rós Atladóttir
-
Leiðandi í stoðtækjum- og hjálpartækjum
Sérhæfð ráðgjöf, þjónusta og hágæða lausnir
Heildstæð þjónusta fyrir einstaklinga, fagfólk og heilbrigðiskerfið
STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna.
Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið og bæta lífsgæði einstaklinga.
Framkvæmdastjóri Stoð er Sigtryggur Hilmarsson
-
Leiðandi á sviði frumlyfja- og samheitalyfja
Traustur samstarfsaðili heilbrigðisstofnanna
Öflugt samstarf við alþjóðleg lyfjafyrirtæki
Vistor er leiðandi fyrirtæki á sviði frumlyfja og samheitalyfja og býr yfir ríkri reynslu og skilningi á þörfum innan heilbrigðiskerfisins.
Fyrirtækið starfar í nánu samstarfi við fjölmörg alþjóðleg lyfjafyrirtæki og veitir faglega þjónustu við skráningar, sölu og markaðsmál, klínískar rannsóknir og dreifingu.
Framkvæmdastjóri Vistor er Arnar Þórðarson
-
Fyrir fagfólk í dýraheilbrigði
Áralöng reynsla af samstarfi við dýralækna og helstu framleiðendur á sviði dýraheilbrigðis
Reynslumikið teymi dýralækna og annarra sérfræðinga
Fána sérhæfir sig í heilbrigði og velferð dýra.
Félagið byggir á traustum grunni dýraheilbrigðisdeildar Vistor og þjónustar dýralækna, bændur, fiskeldisfyrirtæki og dýraeigendur um allt land.
Hjá Fánu starfar reynslumikið teymi dýralækna og sérfræðinga sem vinnur að því að tryggja heilbrigði dýra með áreiðanlegri þjónustu, faglegri ráðgjöf og nýsköpun í dýraheilbrigði.
Framkvæmdastjóri Fánu er Brynjúlfur Guðmundsson