Jafnvægisvog og jafnlaunaúttekt
Veritas fékk viðurkenninguna Jafnvægisvogina 2020, en Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið.
Veritas og öll dótturfélög þess fengu einnig Gullmerki jafnlaunaúttektar Pricewaterhouse Coopers (PwC) 2020 Jafnlaunaúttekt PwC greinir kynbundinn launamun innan fyrirtækja þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á laun, s.s. menntun, starfsaldur, starfaflokkur og vinnustundir. Til að hljóta Gullmerkið þarf launamunur kynjanna að vera undir 3,5%, þegar tekið hefur verið tillit til ofangreindra þátta.
Veritas og dótturfélögin eru stolt af því að vera langt undir viðmiðum PwC og undirstrika þessar niðurstöður áherslur félaganna varðandi jafnan hlut kvenna og karla. Úttektin var fyrst gerð innan félaganna árið 2015 og fengu Veritas og dótturfélögin þá einnig Gullmerkið.