Jón Björnsson verður forstjóri Veritas

21.06.2024 Veritas
Jón Björnsson verður forstjóri Veritas

Jón Björnsson hefur verið ráðinn forstjóri Veritas.  Jón hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Origo hf. en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Festi og Krónunni, Orf Líftækni, Magasin du Nord og Högum. Jón situr m.a. í stjórnum Boozt.com, Origo Lausna og  Dropp. Jón hefur jafnframt setið í stjórn Artasan, eins af fyrirtækjum Veritas, frá 2023.

„Ég hlakka til að ganga til liðs við Veritas og taka þátt í frekari uppbyggingu á fyrirtækjum félagsins. Það eru uppbyggingarár framundan og spennandi verkefni er snúa bæði að innviðum félaganna sem og frekari nýting tækifæra sem stafrænni heimur gefur okkur“ segir Jón sem mun hefja störf í lok ágúst.

„Það er mikill fengur að fá Jón til liðs við samstæðuna nú þegar stærsta þróunar og fjárfestingaverkefni samstæðunnar er framundan“ segir Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður. „Við Jón höfum átt farsælt samstarf í gegnum tíðina og ég tel að hans hæfni og reynsla sé að koma inn á góðum tíma og muni nýtast okkur afar vel“.

Þóranna Jónsdóttir sem tók tímabundið við starfi forstjóra síðastliðið haust mun gegna því þar til Jón tekur við í lok sumars. Hún mun sitja áfram í stjórn Veritas auk þess að sinna öðrum verkefnum fyrir samstæðuna.