Veritas er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022
Veritas er á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022.
Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði.
Fyrirtækin þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2021 og 2020 en rekstrarárið 2019 er einnig notað til viðmiðunar. Þau þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu árin 2021 og 2020 og tekjurnar þurfa að hafa verið yfir 40 milljónir króna hvort ár. Ennfremur þurfa eignir fyrirtækjanna að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2021 og 2020. Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.
Þessu til viðbótar er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast 1.170 fyrirtæki á listann eða um 2,8% fyrirtækja landsins.