Framkvæmdastjórn Veritas

Framkvæmdastjórn Veritas skipa forstjóri, fjármálastjóri, deildarstjóri innri þjónustu/starfsmannastjóri, deildarstjóri upplýsingatæknideildar og framkvæmdastjórar dótturfélaganna fimm (Artasan, Distica, MEDOR, Stoð og Vistor).

Jón Björnsson

Jón Björnsson

Forstjóri

Jón tók við sem forstjóri Veritas í Ágúst 2024. Jón hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Origo hf. en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Festi og Krónunni, Orf Líftækni, Magasin du Nord og Högum. Jón situr m.a. í stjórnum Boozt.com, Origo Lausna og Dropp. Jón hefur jafnframt setið í stjórn Artasan, eins af fyrirtækjum Veritas, frá 2023.

Kjartan Steinsson

Kjartan Steinsson

Fjármálastjóri

Kjartan er viðskiptafræðingur (Cand. oecon.) af fjármálasviði frá Háskóla Íslands. Kjartan hefur áratuga reynslu af rekstrar- og fjármálastörfum og gekk til liðs við Vistor í janúar 2007 og síðar Veritas árið 2008. Hann ber ábyrgð á fjármálum Veritas samstæðunnar, rekstrarfjármunum og fasteignum. Kjartan starfaði á árunum 1997-2006 sem fjármálastjóri Ásbjörns Ólafssonar ehf. og sem framkvæmdastjóri BÍF á árunum 1992-1997.

Pétur Veigar Pétursson

Pétur Veigar Pétursson

Mannauðsstjóri / Sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustu

Pétur Veigar gekk til liðs við Veritas í ársbyrjun 2016 og sinnti innleiðingu á Lean aðferðafræðinni innan allra fyrirtækja samstæðunnar, ásamt verkefnastýringu Lean verkefna. Þar áður starfaði hann m.a. sem fræðslustjóri hjá ISAL. Pétur Veigar er með B.Sc. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.

Hákonía Jóhanna Guðmundsdóttir

Hákonía Jóhanna Guðmundsdóttir

Deildarstjóri upplýsingatæknideildar

Hákonía tók við starfi UT deildar Veritas fyrrihluta árs 2017. Hún hefur viðamikla reynslu af stjórnun, upplýsingatækni og hugbúnaðargerð og starfaði áður m.a. hjá Íslandsbanka, Kaupþingi og Arion banka. Hákonía er með MBA gráðu frá háskólanum í Edinborg og B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.

Arnar Þórðarson

Arnar Þórðarson

Framkvæmdastjóri - Vistor

Arnar tók við starfi framkvæmdastjóra af Gunni Helgadóttur síðla árs 2020. Hann er með M.Sc. í markaðsfræði frá Copenhagen Business School og B.Sc. í hagfræði frá Auburn Montgomery. Áður en Arnar tók við starfi framkvæmdastjóra starfaði hann sem markaðsstjóri hjá Vistor síðan um mitt ár 2018. Þar áður starfaði hann hjá Novo Nordisk, bæði sem vörustjóri í höfuðstöðvum, sem og í þýskum og dönskum dótturfélögum fyrirtækisins.

Brynjúlfur Guðmundsson

Brynjúlfur Guðmundsson

Framkvæmdastjóri - Artasan

Brynjúlfur Guðmundsson er framkvæmdastjóri Artasan. Brynjúlfur sinnti áður starfi markaðsstjóra lausasölulyfja hjá Artasan og þar á undan starfaði hann sem markaðsfulltrúi fyrir Evrópu og Asíu hjá ARRI í London og seinna sem ráðgjafi hjá Accenture í London, Englandi. Brynjúlfur situr í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) og Stoðar hf.

Brynjúlfur er með MBA gráðu og BSc í alþjóða markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Júlía Rós Atladóttir

Júlía Rós Atladóttir

Framkvæmdastjóri - Distica

Júlía Rós tók við sem framkvæmdastjóri Distica í maí 2020, áður starfaði Júlía sem markaðsstjóri hjá Vistor, deildarstjóri hjá Distica, þjónustustjóri hjá Icelandair, verkefnastjóri á þróunarsviði Actavis Group og framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coca-Cola. Júlía Rós situr í stjórn Vörustjórnunarfélags Íslands Alzheimersamtakanna og GS1.

Júlía Rós hefur lokið AMP, Advanced Management program frá IESE, Barcelona Business School, meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun, diplómanámi í mannauðsstjórnun, diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun og B.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands.

Sigtryggur Hilmarsson

Sigtryggur Hilmarsson

Framkvæmdastjóri - MEDOR

Sigtryggur hefur starfað sem framkvæmdastjóri MEDOR síðan 2011. Þar á undan starfaði hann hjá Vistor sem framkvæmdastjóri heilbrigðistæknisviðs og stjórnandi í viðskiptaþróun frá 2004. Á árunum 1996 til 2004 starfaði Sigtryggur sem framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Radiometer America í Cleveland, BNA og sem vörustjóri hjá sama fyrirtæki í Kaupmannahöfn.  Sigtryggur er með MBA gráðu frá Erasmus University, Rotterdam School of Management og Cand. Pharm gráðu í Lyfjafræði frá Háskóla Íslands. Sigtryggur er stjórnarformaður ORF Genetics hf. og situr í stjórn Stoð hf.

Þóranna Jónsdóttir

Þóranna Jónsdóttir

Framkvæmdastjóri - Stoð

Þóranna hefur undanfarið starfað sem sjálfstæður stjórnendaráðgjafi m.a. fyrir Alvotech, Marel og ýmsar opinberar stofnanir. Hún hefur sinnt margvíslegum störfum við Háskólann í Reykjavík, var forseti viðskiptadeildar 2013-2016 og framkvæmdastjóri stjórnunar og rekstrar þar á undan. Hún var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá systurfélögunum Veritas og Vistor árin 2005-2008, fyrsti framkvæmdastjóri Artasan og ein af stofnfélögum Auðar Capital. Þóranna hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu, er formaður stjórnar Landsbréfa, í stjórn Veritas frá 2018 og áður m.a. í stjórnum Festi, Krónunnar, Íslandsbanka og Lyfju. Þóranna er með doktorsgráðu í viðskiptafræði frá Cranfield University, MBA gráðu frá IESE í Barcelona og MSc gráðu í lyfjafræði.